|
föstudagur, 02 maí 2008 |
 Líra frá Vakurstöðum hlaut á vorsýningunni á Sauðárkróki fyrstu verðlaun, 8,05. Líra hafnaði með 8,06 fyrir hæfileika og þar af 8,5 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og fet en fyrir fegurð í reið 9,0. Fyrir sköpulag hlaut Líra 8,0 fyrir flesta þætti utan réttleika7,5 í einkunn og hófa 8,5 í einkunn. Líra er dóttir kynbótatröllsins Orra frá Þúfu og gæðingsmóðurinnar Lyftingar frá Ysta-Mó, móðir Leiknis og Listar frá Vakurstöðum. Eyjólfur Þorsteinsson sýndi Líru fyrir norðan.
|
|
|
mánudagur, 28 apríl 2008 |
 Nú er VÍS mótaröðinni lokið og uppskeran ljós. Eyjólfur Þorsteinsson
sem var í liði Blend sigraði með liði sínu að þessu sinni og hlaut hver
keppandi innan liðsins 100.000.- í verðlaun. Blend liðið hlaut alls
531,5 stig eftir veturinn og óskum við Eyjólfi og knöpunum til hamingju
með árangurinn.
Bæði Eyjólfur og Valdimar hafa unnið sér inn rétt til að taka
þátt í mótaröðinni að ári en fjórtán efstu knaparnir vinna sér inn
sjálfkrafa þátttökuréttinn. Valdimar Bergstað var í liði Málningar sem
hlaut 400 stig alls og hafnaði liðið í fimmta sæti liðakeppninnar.
|
|
Read more...
|
|
|
mánudagur, 07 apríl 2008 |
 Folöldin sem fæddust síðastliðið vor og sumar voru tekin undan mæðrum sínum um helgina og flutt til Villa í Litlu-Tungu þar sem þau verða í góðu yfirlæti næstu tvo mánuði. Síðan verða þau í haganum á Vakurstöðum í sumar.
Alls eru þetta tíu folöld undan hryssum í eigu búsins. Meðal feðra þeirra má nefna Glym frá Innri-Skeljabrekku, Glampa frá Vatnsleysu, Sæ frá Bakkakoti, Leikni frá Vakurstöðum, Ketil frá Vakurstöðum og Veigar frá Vakurstöðum. Öll líta þau vel út og verður gaman að fylgjast með uppvexti þeirra í sumar.
|
|
|
miðvikudagur, 19 mars 2008 |
 Nú er í tamningu hjá Árna Birni Pálssyni Lyfting frá Vakurstöðum. Hryssan er undan Aroni frá Strandarhöfði og Lyftingu frá Ysta-Mó. Hún er systir Leiknis og Listar frá Vakurstöðum og er í eigu Hjartar. Að sögn Árna Björns gengur vel með Lyftingu "hún er opið og jákvætt tryppi og alhliða að upplagi" segir hann. Árni Björn tamdi bæði Leikni og List frá Vakurstöðum og segir að systir þeirra líkist þeim mikið.
"Þessi hross undan Lyftingu frá Ysta-Mó eru frábær og
fljót að koma; má segja að þau séu eiginlega tilbúin frá náttúrunnar
hendi en þetta tryppi er efni í mikinn gæðing, ég byrjaði á henni fyrir
þremur mánuðum og myndina sem Óðinn Jóhannesson stóðhestahaldari tók af okkur er síðan
29. febrúar" segir Árni.
|
|
Read more...
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>
|
| Results 13 - 16 of 46 |