• Icelandic
  • English
Sóley ánægð með árangurinn Print E-mail
sunnudagur, 09 mars 2008
Sóley og TónnBetri helmingur Hjartar, Sóley Halla Möller, hafnaði í þriðja sæti í kvennaístöltinu "Svellkaldar" sem haldið var í Laugardal s.l. laugardagskvöld. Alls 180 konur og hestar tóku þátt að þessu sinni og er það metþátttaka og stóð mótið fram yfir miðnætti.
Í fyrsta sæti í flokknum "Meira vanar" urðu jafnar með einkunnina 6,72 Íris Hrund úr Fáki á hestinum Drífanda frá Búðardal og Jenny Kurki úr Geysi á hestinum Skatti frá Litla-Dal. Að lokum fór svo að dómararnir völdu Írisi sigurvegara með sætavali. Sóley sat hestinn Tón frá Hala og fékk einkunnina 6,56 í áðurnefndum flokki.
Read more...
 
Framtíðar keppnishestur til sölu Print E-mail
fimmtudagur, 06 mars 2008
Valur frá VakurstöðumValur frá Vakurstöðum er til sölu. Hann er á sjötta vetri, hágengur, með gott tölt og brokk en lítið er farið að eiga við skeið. Valur er framtíðar fimmgangshestur, verður góður sem keppnishestur fyrir unglinga, fallegur og með gott geðslag.

Áhugasamir vinsamlega hafið samband við Hjört Bergstað í síma 893 7475.

 
Hátíð í Vesturkoti Print E-mail
mánudagur, 03 mars 2008
Kristín og FinnurHjónin í Vesturkoti á Skeiðum, Finnur Ingólfsson og Kristín Vigfúsdóttir, buðu hestamönnum vinum og ættingjum til opnunarhátíðar s.l. laugardagskvöld í Vesturkoti.
Nýtt hesthús og reiðhöll, ásamt hringvelli með 250m skeiðbraut, var formlega vígt. Sr. Pálmi Mattíasson sá um vígsluna sem haldin var í reiðhöllinni.
Hljómsveitin Klaufar spilaði fyrir dansi og gestum var boðið upp á glæsilegt hlaðborð og drykk. Hross voru sýnd í reiðhöllinni og frændi bóndans, Einar Öder Magnússon, sýndi gestum fimiæfingar á gæðingnum Þey frá Akranesi. 
 
Read more...
 
Uppáhaldið hans Eyjólfs Print E-mail
mánudagur, 25 febrúar 2008
Fura frá EnniVið sögðum frá því s.l. föstudag að ætlunin hafi verið að segja frá hryssu sem Eyjólfur hefur haft undir höndum frá því í janúar. Fura frá Enni er þriggja vetra tryppi sem kemur ákaflega vel út í tamningu. Hún hefur gott geðslag og góðar gangtegundir, úrvals tölt rúmt og hreifingamikið, gott brokk og væntanlega vökur. Fura er dóttir Sveins-Hervars frá Þúfu sem notaður hefur verið í Enni um árabil og Sendingar frá Enni. Sending frá Enni er ræktuð af Eindísi Kristjánsdóttur og Haraldi Þór Jóhannessyni í Enni.
 
 
Read more...
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Results 17 - 20 of 46
We have 6 guests online