• Icelandic
  • English
Nýtt hesthús og reiðhöll í Tjarnarlandi Prenta Rafpóstur
sunnudagur 24. febrúar 2008
ReiðhöllinFjölskyldan í Tjarnarlandi bauð hestamönnum á austurlandi í kaffi og kleinur s.l. föstudag. Vel var mætt í opnunina en hátt í 200 gestir lögðu leið sína í Tjarnarland. Tilefnið var að búið er að innrétta nýtt hesthús sem rúmar 36 hesta. Að sögn Einars Kristjáns Eysteinssonar var hugsunin sú að hafa haughús undir öllu húsinu sem mokað er úr. "Með því spörum við okkur 6-700 þúsund í spónakostnað á ári en ég hef hugsað mér að hafa nokkrar spónastíur með fyrir sparihrossin".

Lesa meira...
 
Gæðingar á Eiðavatni Prenta Rafpóstur
sunnudagur 24. febrúar 2008
Smári frá KollaleiruÞað var heldur napurt á ísnum á Ístölti Austurlands sem lauk í gær á Eiðavatni. Fjölmargir keppendur öttu saman hestum sínum á vatninu sem var botnfrosið eins og venjulega á þessum tíma. Fjölskyldufólkið á Árbakka við Hellu heimsótti mótið og sigruðu feðgarnir sína greinina hvora.
Gústaf Ásgeir á Knörr hafði sigur í unglingaflokknum. Hinrik vann A-flokkinn á Smára frá Kollaleiru eftir harða keppni við Jóhann G. sem átti í ágripsvandræðum og varð að draga sig í hlé á glæsihestinum Hrannari frá Þorlákshöfn.
Lesa meira...
 
Tryppin tamin Prenta Rafpóstur
föstudagur 22. febrúar 2008

Sól frá VakurstöðumÞað er nóg að gera í Víðidalnum við tamningar. Tamningarfólkið Eyjólfur og Hrefna eru á fullu að temja tryppin sem eru á fjórða vetri. Eitt af tryppunum sem byrjað var á í janúar er Sól frá Vakurstöðum, dóttir Sunnu frá Votmúla og Leiknis frá Vakurstöðum.

Um hana segir Eyjólfur. "Hún sver sig í ætt við afkvæmi Leiknis, er fljót að koma til með gott geðslag og mikinn fótaburð. Ég er mjög ánægður hvernig þessi afkvæmi Leiknis þróast hjá okkur.  Þau eru fljót að byrja að tölta en tryppin sem eru nú í tamningu undan Leikni eru öll klárhross.

Lesa meira...
 
Heimsóknir Prenta Rafpóstur
sunnudagur 10. febrúar 2008
heimsoknirFrá því Vakurstaðir opnuðu heimasíðu í byrjun nóvember s.l. hafa 10.391 notendur heimsótt síðuna. Hafa síðuflettingar á vefnum verið 99.048 sinnum. Það kemur á óvart að vefsíðan er töluvert mikið heimsótt frá öðrum löndum en Íslandi í janúarmánuði s.l. alls 29.
Hestamenn í Bandaríkjunum heimsóttu vakurstadir.is 258 sinnum í janúar síðastliðnum. Svíþjóð, og Japan koma þar á eftir og svo Þýskaland, Danmörk og Noregur. Þessi lönd öll eru markaðssvæði íslenska hestsins; hestamenn eru mikið að skoða ættir hrossa á vefsíðunni ásamt því að leita eftir söluhrossum, skoða myndasafnið, lesa fréttir ofl.
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 21 - 24 af 46
Við höfum 9 gesti tengda