• Icelandic
  • English
Ný þjálfunaraðferð á Íslandi Print E-mail
sunnudagur, 03 febrúar 2008
VatnsbrettiNý þjálfunaraðferð hefur verið tekin upp hér á Íslandi. Vatnsgöngubretti sem virkar þannig að hesturinn er leiddur inn í vatnstank, einskonar bás, og hann svo fylltur af vatni eftir þörfum t.d. upp að hnjám eða brjósti eða ofar, allt eftir þjálfunarstiginu sem hesturinn er kominn í.
Hægt er að stilla hita vatnsins og gönguhraða þjálfunarbrettisins eftir þörfum. Það eru feðgarnir Viðar Ingólfsson og Ingólfur Jónsson á Kvíarhóli sem hafa komið sér upp þessari aðstöðu í hesthúsinu á Kvíarhóli.
 
Read more...
 
Mikið frost Print E-mail
laugardagur, 02 febrúar 2008
vakurstadir_vetur_2008Frostið hefur verið heldur mikið á Vakurstöðum í dag og í gær. Í morgun fór frostið niður í -19 stig og heldur kalt var að gefa útigangnum. Þó hafa hryssur og tryppi það fínt, fá nóg hey og gott skjól ásamt vatni.
 
Góða veðrið var líka notað til ljósmyndunar og í myndabankann eru komnar nokkrar myndir og nú er komin mynd af Lyftingu frá Ysta-Mó á síðuna. Hægt er að skoða mynd af henni í valmyndinni undir "Hryssur". Hún hefur verið ein helsta ræktunarhryssa búsins en engin mynd hefur verið til af henni, ekki í reið né frjálsri í haga.
Read more...
 
Efnileg hross til sölu Print E-mail
miðvikudagur, 09 janúar 2008
Seifur frá vakurstöðumVið viljum minna hestamenn og konur á að við höfum ávallt til sölu efnileg unghross, hryssur og stóðhestsefni úr ræktuninni okkar sem við erum stolt af.
 
Hér á síðunni er hægt að finna hesta sem eiga foreldra með góð fyrstu verðlaun en nokkrir þekktir stóðhestar sem við höfum notað og komið hafa vel út í ræktuninn má nefna, Kolfinn frá Kjarnholtum I, Keili frá Miðsitju, Orra frá Þúfu, Adam frá Ásmundarstöðum og Aron frá Strandarhöfði. Nokkrar hryssur á sölusíðunni eru með fyli við Leikni frá Vakurstöðum og svo er stóðhestsefnið Seifur frá Vakurstöðum sem er fæddur 2003 til sölu.
Read more...
 
Nýjungar á vefsíðunni Print E-mail
þriðjudagur, 08 janúar 2008
Leiknir og BjörkEins og sumir hafa tekið eftir er nú hægt að panta beint undir stóðhesta hér á síðunni. Formið er einfalt í notkun. Viðkomandi smelllir í aðalvali á "Panta undir stóðhest" og pöntunarblaðið birtist þá og þar er valinn stóðhestur og svo er fyllt út eyðublaðið. Líka er þessi valmöguleiki tiltækur við hvern stóðhest þegar verið er að skoða hvern hest fyrir sig í valhnappnum "Stóðhestar". Eftir að búið er að fylla út valblaðið þá er valið senda pöntun og hún fer þá í ferli. Haft verður samband við hryssueigendur í síma eða með tölvupósti. Við vonum að þessi aðferð til að panta sér folatoll henti hryssueigendum vel. Kveðja Vakurstaðir.
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Results 25 - 28 of 46
We have 9 guests online