|
fimmtudagur, 03 janúar 2008 |
|
Hrefna María Ómarsdóttir og Eyjólfur Þorsteinsson sjá um tamningarnar í vetur hjá Vakurstöðum. Þau eru bæði vel menntuð og miklir reynsluboltar í hestamennskunni. Hrefna María útskrifaðist árið 2005 frá Hólaskóla og hlaut hina eftirsóttu Morgunblaðsskeifu fyrir besta samanlagðan árangur í öllum reiðprófum þess árs 9,09. Ekki lét María það aftra sér að taka þátt í skeifudeginum þó hún væri í gipsi á hægri fæti og sigraði fjórganginn á hestinum Zorró frá Álfhólum. Um Maríu er hægt að telja upp langan lista þátttöku og sigra á keppnisvellinum.
Af afrekum Eyjólfs má nefna
íslandsmeistari í flokki meistara í fimmgangi á hryssunni Súlu frá
Hóli eftir dramatíska keppni við Sigurð V. Matthíasson árið 2003. Heimsmeistari
ungmenna í fimmgangi á HM2003 á sömu hryssu.
|
|
Read more...
|
|
|
föstudagur, 21 desember 2007 |
Vakurstaðir óskar öllum hestamönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ár.
|
|
|
fimmtudagur, 20 desember 2007 |
 Segir
Valdimar Bergstað í viðtali á Eiðfaxa. Hann er nú staddur á Fors Gård í Svíþjóð hjá
reiðkennaranum og knapanum Ylvu Hagander fram að jólum til þess að
fræðast um og læra á Lusitano hestinn sem er af portúgölsku bergi
brotinn. Valdimar kom til Svíþjóðar í gær og er nú þegar búinn að fara
í þrjá reiðtíma.
Hvernig lýst þér á?
Ég kom í gær og er strax búinn að fara í 3 reiðtíma á þremur mismunandi
hestum. Mér lýst mjög vel á hestana og kennsluna. Það er alveg ótrúlegt
hvað þessir hestar kunna og geta gert. Þeir eru líka svo vinnufúsir.
Einn hesturinn sem ég prófaði í dag er stóðhesturinn Jambo sem er
fremur þekktur hérna í Svíþjóð. Hann hefur meðal annars verið í
hlutverki Pegasusar á Globen sýningunni. Ylva og dóttir hennar hafa
verið að þjálfa hann.
|
|
Read more...
|
|
|
þriðjudagur, 18 desember 2007 |
 Sá leiði atburður átti sér stað að Hrói frá Votmúla er fallinn. Hann drapst í Þjóðólfshaga þar sem hann var til prufu. Stían sem Hrói var í í Þjóðólfshaga var 100% örugg og allt var eins og best verður á kosið hjá honum en Hrói hefur sennilega verið að velta sér með þeim afleiðingum að hausinn fór undir hann og við það hefur hálsinn brotnað. Svona slys geta alltaf gerst en gera ekki boð á undan sér en þetta er ekki í eina skiptið sem svona óhöpp verða í íslenskum hesthúsum. Við viljum brýna fyrir hesteigendum að gæta vel að bilum frá gólfi og
upp undir milligerði á milli stía því þar geta hross farið sér að voða
ef þau komast á milli þegar þau þurfa að standa upp eða snúa höfðinu
eftir heyi osv.frv.
|
|
Read more...
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>
|
| Results 29 - 32 of 46 |