|
miðvikudagur 21. nóvember 2007 |

Nú fer Meistaradeildin að hefjast og stjórnendur liðanna búnir að velja knapa sína fyrir slaginn. Sex lið munu keppa sín á milli í fjórgangi, fimmgangi, tölti, smala, gæðingafimi, skeiði, gæðingaskeiði, flugskeiði og slaktaumatölti T2. Liðstjóri Málningar hf, Þorvaldur Árni Þorvaldsson, valdi fyrst í liðið Atla Guðmundsson sem sigraði Meistaradeildina síðast en lið Málningar skipar að þessu sinni auk Atla og Þorvaldar, Valdimar Bergstað og Sævar Örn Sigurvinsson. Þannig munu sex lið með fjórum knöpum berjast um titilinn í vetur.
|
|
Lesa meira...
|