|
þriðjudagur 9. október 2007 |
List frá Vakursstöðum fékk 10 fyrir tölt á yfirlitssýningu á Gaddstaðaflötum í morgun. Hún er því önnur hryssan sem skorar fullt hús í tölti á þessu vori. Hún er nú önnur hæsta hryssan í elsta flokki á Gaddstaðaflötum. Knapi Hulda Gústafsdóttir. Efst er gæðingurinn Fjörgyn frá Kjarnholtum með 8,52, sýnandi Daníel Jónsson. Hann er einnig knapi á þriðju hæstu hryssunni, Lady frá Neðra-Seli. Ljósmyndir: HESTAR/Axel Jón.
Fréttin birtist á hestafréttasíðunni HESTAR þegar List hlaut hina eftirsóttu tíu fyrir tölt í kynbótadómi sumarið 2006. Með fréttinni er kynbótadómur Listar ásamt hæstu dómum og myndum af Fjörgyn frá Kjarnholtum og Lady frá Neðra-Seli sem Daníel Jónsson sýndi.
|
|
Lesa meira...
|