• Icelandic
  • English
Vakurstaðir með góð hross til sölu Prenta Rafpóstur
laugardagur 22. nóvember 2008
ut_i_haga.jpgEigum ávallt vel ættuð og góð hross til sölu, bæði tamin og ótamin, reiðhross, keppnishross og ræktunargripi. Einning höfum við fyrstu verðlauna hryssur til sölu ásamt folöldum undan fyrstu verðlauna foreldrum. Vinsamlega hafið samband í síma eða í gegnum tölvupóst.

 

 

 

 
Gott blóð, Sauðárkróksblóð Prenta Rafpóstur
fimmtudagur 30. október 2008
Gllynur frá SauðárkrókiKlárhesturinn og snillingurinn Glymur frá Sauðárkróki er til sölu hjá Hirti Bergstað og fjölskyldu. Glymur frá Sauðárkróki er úr ræktun Sveins Guðmundssonar á Sauðárkróki og því er það kjörið tækifæri fyrir ræktendur sem líta til Sauðárkrókslinunnar að gefa Glymi gaum. Móðir Glyms er Gnótt frá Sauðárkróki sem er afkvæmi Hrefnu frá Sauðárkróki, dóttir Sörla og Flugu frá Sauðárkróki.

Faðir Glyms er Hrafnssonurinn Logi frá Skarði sem hestamenn þekkja vel en hann var seldur til útlanda fyrir nokkrum árum. Mette Mannseth sýndi Glym á LM2006 og síðan tók Daníel Jónsson við taumunum og sýndi hann á landsmótinu síðastliðið sumar. Þar hlaut hann 8.38 fyrir hæfileikaþáttinn og 8.39 í aðaleinkunn. Fimm níur fyrir tölt, brokk, stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Sköpulag er gott, þar er hann með 8.40 í einkunn. 8.0 fyrir höfuð, 9.0 fyrir háls, herðar og bóga og samræmi. Fyrir fótagerð er hann hins vegar með 7.5.

Glymur er bróðir Galsa frá Sauðárkróki sem var sæmdur heiðursverðlaunum fyrir afkvæmi árið 2004. Kaupverðið fæst ekki gefið upp.

Mette Mannseth og Glymur frá Sauðárkróki á landsmóti hestamanna á Vindheimamelum 2006.Mynd/Axel Jón.

 
Sónað hjá Leikni frá Vakurstöðum Prenta Rafpóstur
fimmtudagur 14. ágúst 2008
leiknir_og_bjork_i_haga72 Sónað verður undan Leikni frá Vakurstöðum n.k. mánudag 18. ágúst. Fjórtan hryssur sem sónaðar voru eftir húsmál eru allar fengnar.

Haft verður samband við hryssueygendur eftir sónarskoðun.

 

 
Valdimar efstur eftir forkeppni Prenta Rafpóstur
þriðjudagur 1. júlí 2008
valli og leiknir lm060081 Valdimar Bergstað er nú efstur eftir forkeppnina á Leikni frá Vakurstöðum sem lauk í gær í ungmennaflokki á landsmóti hestamanna. Hann hlaut einkunnina 8.65 en næst á eftir honum er Hekla Katharina Kristinsdóttir með einkunnina 8.57. Hekla sat gæðingshryssuna Nútíð frá Skarði. Þrjátíu komast áfram í milliriðil og víst er að keppnin verður spennandi.
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 9 - 12 af 46
Við höfum 12 gesti tengda